Flýtilyklar
Fréttir
Fundargerð 1 / 2010
Mættir: Jónas Bjarki Björnsson, Hrafnkell Hannesson, Unnur Björgvinsdóttir, Kristín Ársælsdóttir, Gunnlaugur Ingólfsson og Páll Baldursson..
Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Smábátasjómenn höfðu óskað eftir að fá að hitta sveitarstjórn, oddviti bauð smábátasjómenn velkomna. Farið var yfir stöðu mála varðandi útgerð smábáta á Breiðdalsvík, byggðakvóta og strandveiðar. Að loknum umræðum viku smábátasjómenn af fundi og gengið var til formlegar dagskrár.
Dagskrá:
1. Fjárhagsleg málefni
a) Fjárhagsáætlun 2010.
Sveitarstjóri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 til seinni umræðu. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að heildartekjur A og B hluta verði 168.511 mkr. en gjöld 164.028 mkr. Að teknu tillit til fjármagnsliða, sem eru áætlaðir 13.668 verði rekstrarniðurstaða A og B hluta neikvæð upp á 9.185 mkr. Fjárhagsáætlunin verður birt í heild sinni á heimasíðu sveitarfélagsins. Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps fyrir árið 2010 samþykkt samhljóða.
b) Þriggja ára áætlun.
Lögð var fram þriggja ára áætlun Breiðdalshrepps fyrir árið 2011 – 2013. Sveitarstjórn samþykktir áætlunina samhljóða og vísar henni til seinni umræðu.
c) Reglur um afslátt af fasteignagjöldum.
Sveitarstjórn staðfestir eftirfarandi reglur varðandi álagningu fasteignagjalda 2010:
Reglur um afslátt af fasteignaskatti fyrir árið 2010
Heimild sveitarstjórnar til þess að lækka fasteignagjöld eða fella niður nær eingöngu til fasteigna¬skatts og holræsagjalds. Ekki er heimilt að fella niður önnur fasteignagjöld, svo sem lóðaleigu, vatns¬gjald, sorphirðugjald og sorpeyðingargjald.
1.gr.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Breiðdalshreppi er veittur afsláttur af samþykktu íbúðarhúsnæði og af ónotuðum útihúsum og jörðum, samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar Breiðdalshrepps ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum.
2.gr.
Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Breiðdalshreppi sem búa í eigin íbúð og:
Eru 67 ára við upphaf álagningarárs, eða eldri.
Hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir upphaf álagningarárs.
Hafa ekki leigutekjur af viðkomandi húsnæði.
3.gr.
Ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða og annað er yngra en 67 ára og vinnufært er gjaldið lækkað í samræmi við viðmiðunartekjur viðkomandi einstaklings.
4. gr.
Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að kr. 41.289,- á hverja eign.
Afsláttur er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna, þ.m.t. eignatekna og 50% fjármagnstekna síðastliðins árs, samkvæmt skattframtali. Miðað er við sameigin¬legar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.
5. gr.
Tekjumörk eru sem hér segir:
Einstaklingar:
Fullur afsláttur skv. 4. gr. með tekjur allt að kr. 1.748.326,-
Engan afslátt með tekjur yfir kr. 2.247.844,-
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Fullur afsláttur skv. 4. gr. með tekjur allt að kr. 2.435.167,-
Engan afslátt með tekjur yfir kr. 3.122.010,-
Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.
6. gr.
Þar sem álagning gjalda mun fara fram í gegnum Álagningarhluta Landskrár fasteigna mun Breiðdalshreppur sækja með rafrænum og öruggum hætti hjá RSK upplýsingar um tekjuskattstofn elli- og örorkulífeyrisþega vegna útreiknings á afslætti.
Jafnframt er hægt að sækja um afslátt af fasteignaskatti á þar til gerðum eyðublöðum frá Breiðdalshreppi, sem einnig má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins. Með umsókn skal skila afriti af skattframtali, staðfestu af skattstjóra, vegna síðastliðins árs og afriti af örorkuskírteini ef umsækjandi er 75% öryrki.
Ef tekjur aðila hafa lækkað milli áranna 2008 og 2009 geta aðilar fengið leiðréttingu á fasteignagjöldum með því að leggja fram staðfest afrit af skattframtali ársins 2009, (eða staðfestingu skattstjóra á tekjum ársins 2009) eftir að framtölum ársins hefur verið skilað til skattstjóra.
7. gr.
Falli aðstæður ekki undir þær reglur, sem að framan greinir, skal hreppsnefnd ákveða um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts.
8. gr.
Hreppsnefnd Breiðdalshrepps endurskoðar tekjumörk og hámark afsláttar í desember ár hvert, fyrir næsta ár.
Álagningarreglur fasteignagjalda 2010
Fasteignaskattur:
Fasteignaskattur íbúðarhúsnæði A 0,625 %
Fasteignaskattur opinberar byggingar B 1,320 %
Fasteignaskattur atvinnuhúsnæði C 1,650 %
Holræsagjald íbúðarhús 0,200 %
Holræsagjald atvinnuhúsnæði 0,200 %
Lóðarleiga 1,300 %
Vatnsskattur íbúðarhús 0,300 %
Vatnsskattur atvinnuhús 0,300 %
Sorphirðugjald 12.500,- pr. íbúð
Sorpeyðingargjald 12.500- pr. íbúð
Sorpurðunargjald fyrirtæki 1.800,- pr. tonn
Útvarsvarsprósenta 13,28%
Gjalddagar eru fimm: þ.e. 1.2, 1.3, 1.4, 1.5 og 1.6. 2010
2. Skýrsla sveitarstjóra
a) Sorpurðun. Erindi frá Fljótsdalshéraði.
Lagt var fram erindi Fljótsdalshéraðs dags. 3. febrúar 2010, þar sem óskað er eftir því að fá að urða tímabundið á urðunarstað Breiðdalshrepps. Sveitarstjóri gerði grein fyrir erindinu og fundi sem hann ásamt oddvita og formanni skipulagsnefndar áttu með bæjarstjóra og umhverfisfulltrúa Fljótsdalshéraðs um málið.
Sveitarstjórn samþykkir umrædda beiðni og felur sveitarstjóra að ganga frá samkomulagi við landeiganda, Umhverfisstofnun og Fljótsdalshérað.
b) „Austurland eitt sveitarfélag“ og framtíðarskipulag stoðstofnana SSA.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir vinnu framangreindra tveggja starfshópa SSA.
c) Skýrsla um málefni hafna.
Lögð var fram nýútkomin skýrsla um fjárhagsvanda hafna.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps lýsir vonbrigðum með þá hugmyndafræði að það geti verið lausn að úrelda atvinnutækifæri. Réttara væri að ríkisvaldið setji fjármuni í það að kanna hvernig við getum betur nýtt þau tækifæri sem við þó eigum, eins og t.d. lítið notaðar hafnir. Strandveiðar á liðnu sumri er gott dæmi um þess háttar aðgerð og virkaði mjög vel hér á Breiðdalsvík.
d) Sorpflokkun.
Sveitarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaða sorpflokkun. Þegar er búið að setja upp grunnaðstöðu við áhaldahús til þess að taka á móti flokkuðu sorpi. Fjárfest hefur verið í pressu, sem væntanleg er á næstunni, í framhaldi verður verkefnið kynnt fyrir íbúum.
e) Málefni Héraðsskjalasafns Austurlands.
Sveitarstjóri kynnti fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafnsins frá 26.11.09. Jafnframt fór hann yfir drög að reglum um bókasafn Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með löngu tímabæra tengingu á milli árlegra rekstrarframlaga sveitarfélaganna og tekna bókasafnsins.
3. Bréf til sveitarstjórnar
a) Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, dags. 31. janúar 2010.
Lagt var fram bréf ráðuneytisins varðandi byggðakvóta fiskveiðiárið 2009-2010. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að kanna málið áfram í framhaldi af umræðum við smábátasjómenn.
b) Lánasjóður sveitarfélaga, dags. 24. janúar 2010.
Lagt var fram erindi frá sjóðnum varðandi heimild til þess að fá að birta í opinberum gögnum upplýsingar um útlán sjóðsins og hvernig þau skiptast milli sveitarfélaga og félaga í þeirra eigu. Sveitarstjórn samþykktir heimild til sjóðsins og felur sveitarstjóra að staðfesta það til sjóðsins.
c) SSA, dags. 27. janúar 2010.
Varðandi bókun stjórnar SSA vegna ákvörðunar yfirstjórnar RÚV að leggja niður starfsstöðvar svæðisútvarpa og þá m.a. á Austurlandi. Sveitarstjórn tekur undir bókun SSA.
4. Önnur mál
Fleira ekki, fundi slitið kl. 20:00.
Fundargerð ritaði Páll Baldursson sveitarstjóri.
Til baka
Heimsóknir
Samtals: 841220
Á næstunni
Leit
Veðrið
Færð á vegum (NA)
Færð á vegum (A)
Skoða veðurkort



